Lokað er fyrir skráningu í klúbbinn - skráðu þig á biðlista - opnum aftur í september!
Árgjaldið fyrir 2025 er 17.500 kr (gildir frá og með feb 2025). Einungis 1.458 á mánuði fyrir fullt af golfi og frábæran félagasskap.
Árgjald klúbbsins er ávallt stillt í hóf. Fyrir það færðu skiplögð mót með skemmtilegu fólki og flottum vinningum. Skipulögð mót eru amk tvisvar í viku. Gjald í hvert mót er stillt í hófi og er mun hagstæðara en almennt vallargjald. Með því að fara í amk 4 -5 mót á ári hefur þú fengið árgjaldið tilbaka, spilar ódýrara og skemmtilegra golf. Golf á Spáni hefur stimplað sig vel inn í golfsamfélagið á Alicante og hefur því samið um góð verð út þetta golf ár, sem klúbbmeðlimir njóta.
Já við bjóðum nýliða í golfi sérstaklega velkomna. Láttu okkur vita og við styðjum þig og hvetjum áfram. Vertu velkomin :)
Innifalið er öll umsjón og þjónusta klúbbsins. Klúbburinn sér um að undirbúa hvar á að spila, semja við viðkomandi golfvelli um tíma og verð. Útbúa skráningaferli og halda úti heimasíðu. Útvega verðlaun, ritföng og skorkort. Og margt margt fleira.
Bergur bakari ásamt aðstoðarfólki mætir í öll mót og sér um að halda uppi stemmingunni.
Klúbburinn heldur vikulega mót fyrir utan þau tímabil sem veðrið ræður för (tímabilið júní - ágúst og í desember - janúar)
Við opnum dyrnar inn í klúbbinn tvisvar sinnum á ári. Í upphaf árs og í byrjun hausts.
Haustið hefst með Skemmtilegur September og geta allir sem viljað skráð sig í mót og þannig upplifað hina skemmtilegu stemmingu sem fylgir móti hjá Golf á Spáni. Vorið hefst með Frábærum Febrúar með sama fyrirkomulagi. Í lok hvers skráningarmánaðar er opnað fyrir formlegri skráningu í klúbbinn.
Endilega skráðu þig á biðlistann hjá okkur og við látum þig vita hvenær er að prófa að vera meðlimur í klúbbnum og formlega skrá sig.
Já að sjálfsögðu. Þú fylgist með þegar þú kemur í bæinn og skráir þig á mót.
Golfvellirnir sem við spilum mest á eru staðsettir á Costa Blanca ströndinni. Við erum fastagestir á völlunum Vistabella, Font Del Llob, Alenda Golf og Marquesa. Við erum alltaf að skoða fleiri velli sem við kynnum jafnóðum.
Það geta verið margar ástæður fyrir því. Prófaðu þetta fyrst:
leitaðu að pósti frá golfaspani@golfaspani.com - það er möguleiki að pósturinn frá klúbbnum hafi farið í rangt pósthólf hjá þér.
ef þú finnur ekki póst sendu okkur fyrirspurn á golfaspani@golfaspani.com og við svörum við fyrsta tækifæri
Já það er möguleiki. Ef mót fyllast ekki þá er skráðum þátttakendum boðið að fylla upp í mótið með boðgesti.
Þú getur einnig sent tölvupóst á golfaspani@golfaspani.com og athugað hvort það sé pláss fyrir þig.
Við viljum halda tölvupóstum í lágmarki.
Í hvert sinn sem þú skráir þig í mót færðu sjálfkrafa sent afrit af skráningunni þinni sent á það netfang sem þú notar í skráningaforminu. Staðfestingaposturinn kemur frá Google Forms.
Í framhaldinu fylgist þú með pósti inn í FB hópnum okkar eða á FB síðunni okkar
Þú getur treyst því að hafa tryggt þér pláss í mót ef þú gast skráð þig.
Skráningablaðið lokast sjálfkrafa þegar hámarksfjölda þátttakenda er náð.
Ef þú ert ekki nú þegar í Facebook hópurinn okkar smelltu hér og sóttu um aðgang - Vinsamlega athugið: Eingöngu fyrir núverandi meðlimi og það er nauðsynlegt að gefa upp netfang.
Við erum að safna algengum spurningum fyrir síðuna okkar. Endilega sendu okkur spurningu á netfangið golfaspani@golfaspani.com og við svörum við fyrsta tækifæri.