Vertu með í Frábærum Febrúar - allir geta verið með - Nýskráning opnast í lok Febrúar.
Skráning opnast 8 dögum fyrir mót og lokast þremur dögum fyrir mót.
Eftir skráningu færðu sent staðf./afrit af skráningunni (ath. spam hólf).
Vinsamlega athugaðu að staðfestingin kemur frá Google form.
Vinsamlega athugið að einungis er hægt að skrá einn þátttakanda í einu.
Við tryggjum lágmarksfjölda í hvert mót.
Ef mót fyllist þá lokast fyrir skráningu.
Til að komast á biðlista í mót vinsamlega sendu póst á golfaspani@golfaspani.com
Bókunarreglur - gilda alltaf:
Bókun í mót er staðfesting á greiðslu í mót óháð þátttöku.
Frávik og afbókun þarf að alltaf að fara í gegnum Golf á Spáni við fyrsta tækifæri til að hleypa öðrum meðlimum GáS, sem eru á biðlista, að.
Bókun er eingöngu framseljanleg til annars meðlims með samþykki Golf á Spáni.
Sá sem skráir sig ber alltaf ábyrgð á greiðslu fyrir sína bókun.
Mótsgjald greiðist á mótstað.
Afbókanir:
Eingöngu er hægt að afbóka sig þremur dögum fyrir mót, kl 12:00 á hádegi, til að sleppa við mótsgjald.
Afbókun skal alltaf vera skrifleg og send á netfangið golfaspani@golfaspani.com.